Sólþurrkað tómatapestó
100g sólþurrkaðir tómatar, lagðir í bleyti yfir nótt
100g lífrænir maukaðir tómatar
1 stórt hvítlauksrif
1 tsk límónusafi
10 basil lauf - hægt að nota steinselju eða annað grænt
75g kasjúhnetur, þurrristaðar
2-3 lífrænar döðlur
100ml kaldpressuð lífræn ólífuolía
smá himalaya salt
Allt nema ólífuolían er sett í matvinnsluvél og maukað. Setjið ólífuolíuna útí og klárið að mauka, mér finnst betra að hafa þetta ekki algjört mauk, kryddið með smá salti. Geymist í gamaldags sultukrukku (þessum með appelsínugulu "þétti teygjunum") í allt að mánuð í kæli.
400 gr spelt penne
Sósan:
2 hvítlauksrif - fínsöxuð
1 flaska Passata tómatar
1 ds Pastasósa með basil
2 msk lífrænt tómatpúrré
1 tsk timian
1 tsk oregano
1 tsk basil
smá sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
oná:
nokkrar sneiðar af parmesan - líka hægt að nota jurtaparmesan
Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningunum á pakkanum. Sósan: setjið allt í blandara og blandið saman og hellið í pott og hitið. Veltið pastanu upp úr sósunni og stráið smá parmesan yfir ef vill áður en borið er fram.
Eggaldin lasagna
3-4 eggaldin, skorin í 1/2 cm sneiðar ólífuolía til að pennsla með 1 1/2 Passata maukaðir tómatar 1 dós lífræn tómatpúrra 3-4 hvítlauksrif, pressuð 3 tsk ítölsk kryddblanda 1 tsk Himalayasalt 100g parmesan (má nota soja ost) 500g rifinn mozzarella (má nota soja ost) (gott að nota mosarellakúlur og skera í sneiðar) Setjið eggaldin sneiðarnar í ofnskúffu & grillið í ofninum (uþb 250°C og ofninn stilltur á grill) þær þurfa um 2-4 mín á hvorri hlið. Þið getið penslað sneiðarnar með smá ólífuolíu þegar þær koma út úr ofninum. Hrærið öllu í sósuna saman í pott. Setjið í ofnfast fat: 1 lag tómatsósa 1 lag eggaldin 1 laga ostur endurtekið 2svar eða 3svar. Bakið í ofni í 15-20 mín við 200°C.
Molar
Vissir þú að …….
Lífræna tómatlínan frá Himneskt er eingöngu unnin úr tómötum sem fá að fullþroskast á plöntunni. Þá eru þeir sætastir og því eru þessar tómatvörur alveg sykurlausar.
Í búsáhaldabúðum getur þú fengið sérstakar mottur til að setja í ofnskúffuna í staðin fyrir bökunarpappír? Fjölnota og mjög umhverfisvænt. (sást í Hagkaup)
Það er gott að nota íslenska grænmetið núna. Hvítkál, rifnar gulrætur + smá rifin piparrót eru ótrúlega góðar með kasjúdressingu? Minnir á gamaldags hrásalat, bara miklu hollara… (uppskrift af kasjudressingu er að finna á: www.lífrænt.is)