UngbarnamaturLengi býr að fyrstu gerð
Avókadó + kókosvatn = sönn ást1 avókadó1 dl kókosvatn (ég nota dr.Martins)1 tsk smátt söxuð söl1 tsk grænt duft (ég nota Vitamineral Green)Afhýðið avókadóinn og fjarlægið steininn, skerið í bita og setjið í blandaraásamt kókosvatninu + sölvum + grænu dufti. Blandið þar til silkimjúkt ogkekklaust. Ef of þykkt – bætið smá kókosvatni útí. Ef of þunnt – bætið smáavókaó útí. Geymist í sólarhring í ísskáp.
Tilbrigði:Bætið útí:? Smá spínati eða öðru grænu káli + smá alfalfa + nokkrum epla bitum.? Nokkrum mangóbitum + nokkrum epla bitum + smá goji berjum? Smá bláberjum + smá spínati? 1 hylki af acidophilus (hylkið opnað og duftið notað)? krækiberjum + fjallagrösum (sem hafa legið í bleyti yfir nótt)
Dásamlegur og freyðandi drykkur2 dl kókosvatn1 tsk grænt duft (ég nota Vitamineral Green)Fullt fullt af ástSetjið í blandara og blandið þar til freyðandi og girnilegt:*
Tilbrigði:Bætið útí:? hnefa af spínati + hamingju? mangóbitum + ást? vatnsmelónu/hunangsmelónubitum + gleði? bláberjum + kærleika? frosnum hindberjum? 1 hylki af acidophilus (hylkið opnað og duftið notað)
Marningur úr rauðrófum1 dl lífrænar rauðrófur, afhýddar og skornar í bita1 dl vatnsmelóna, afhýdd og skorin í bita1 dl vatn eða kókosvatn – meiri vökvi ef með þarf½ lítið lífrænt epli1 msk goji ber (best að leggja þau í bleyti yfir nótt)fullt af kærleikaAllt sett í matvinnsluvél eða blandara og blandað vel saman. Þessiverður aldrei alveg silkimjúkur, hann hefur alltaf smá korn í sér.Geymist í 1 sólarhring í kæli – svo það er hægt að búa þennan til fyrir 2daga í einu.
Tilbrigði:Bætið útí:? 1 hylki af acidophilus + smá spírum? bláberjum + gleði? krækiberjum + ást
MolarVissir þú að……….
Því fyrr sem við venjum börnin okkar á græna litinn því meiri líkureru á að þeim finnist grænmeti vera sjálfsagður hluti af mataræðinuþeirra. Einnig er það reynsla mín og fleiri foreldra að þau sækja minna ísælgæti.
Avókadó er af mörgum heilsufrömuðunum talinn einn sá allra hollastiávöxtur sem börnum er gefið? Hann hafi fullkomna samsetningu afpróteinum + fitu + kolvetnum + vítamínum + stein og snefilefnum.
Kókosvatn er sérlega næringarríkt og einstaklega gott í litla kroppa.Það er stútfullt af góðri næringu auk þess að vera náttúrulega sætt.Gott er að nota það sem sætu í mauk og grauta í staðin fyrir sykur.