Hráefni nota í staðinHvítt hveiti 100% fínt malað speltHvítt hveiti 10-20% fínt malaðar möndlur & 80-90% fíntspeltHvítt hveiti 10-20% fínt malað kókosmjöl & 80-90% fínt speltHvítt hveiti hafa 80% fínt spelt & restina e-h annað (20%)
Hvítur sykur 1 dl hvítur sykur = ½ -3/4 dl agave sýrópHvítur sykur 1 dl hvítur sykur = 1 ¼ dl döðlumaukHvítur sykur 1 dl hvítur sykur = ½ dl agave + ½ dl döðlumaukHvítur sykur hafa ½ hvítan sykur & rest e-h annað
Smjörlíki 1 dl ½ dl kaldpressuð kókosolíaSmjör 1 dl ½ dl kaldpressuð kókosolíaOlía 1 dl ¾ dl kaldpressuð kókosolíaÞetta gerir uppskriftir sætari án þess að nota sykur: krydd, t.d. appelsínuhýði, sítrónuhýði, kanill, vanilla, malaðar kardimommur, allrahanda, negull, múskat, smá himalaya salt, hreint kakóduft, carobduft, dropar t.d. vanillu, möndlu, hnetur, möndlur & kókosmjöl sem búið er að þurrista, kæla & mala fínt,
döðlumauk400 g lífrænar döðlurvatnsmá himalaya eða sjávarsalta) döðlurnar lagðar í bleyti í 15-30mín, vatninu hellt frá & síðan er allt maukað í matvinnsluvélgeymist best í frysti en líka í ísskápb) döðlurnar settar í pott með vatni, það látið fljóta rétt yfir, soðið í um 30 mín, kælt & maukað í matvinnsluvélgeymist besti í frysti en líka í ísskáp
Nokkur góð ráð við bakstur:- Ef of mikið af mjöli fer óvart í deigið er gott að setja nokkra dropa af olíu og /eða vatni útí - Oftast er best að eiga við kalt deig og því upplagt að hnoða í smákökurnar daginn áður og geyma deigið í ísskáp yfir nótt.- Kæla allar kökur vel á rist áður en þær eru settar í loftþétt ílát og geymdar á þurrum og köldum stað
Nýtískuleg hjónabandssæla150g tröllahafrar150g spelt, t.d. fínt og gróft til helminga50g kókosmjöl1 tsk vínsteinslyftiduft2 dl kókosolía1 dl agavesýróp2 dl rabbabarasulta Blandið þurrefnunum saman í skál, hrærið saman kókosolíu og agavesýrópi og blandið saman við þurrefnin. Þjappið 2/3 hluta af deiginu í smurt tertuforsultunni yfir og myljið restinni af deiginu yfir. Bakið við 180°C í um 30 mín.
Gróft og gott speltbrauð 2 ½ dl gróft spelt2 ½ dl fínt spelt1 dl sesamfræ1 dl sólblómafræ1 dl kókosmjöl1 dl saxaðar hnetur1 msk vínsteinslyftiduft½ tsk salt2 -3 msk hunang2-2 ½ dl sjóðandi vatn1 msk sítrónusafiHitið ofninn í 180°C, blandið þurrefnunum saman í skál + hunang, hellið vatni og sítrónusafa útí og hrærið þessu saman, skiptið í tvennt, setjið í 2 meðalstór smurð form eða 1 í stærra lagi. Bakið við 180°C í um 30 mín , takið brauðið úr forminu og haldið áfram að baka í 10 mín. Hrökkkex1 dl haframjöl1 dl sesamfræ1 dl hörfræ1 dl sólblómafræ1 dl graskerjafræ1 dl gróft spelt1 dl fínt spelt2 tsk vínsteinslyftiduft1 tsk Himalaya/sjávar salt1 1/4 dl kaldpressuð kókosolía eða ólífuolía2 dl vatnsmá sesamfræ til að strá yfir deigið þegar búið er að fletja það útSólblóma og graskerjafræ eru þurrristuð á pönnu þar til gyllt og kæld, blandið síðan allri uppskriftinni saman og hnoðið deigið. Skiptið deiginu í tvennt og fletjið hvern hluta út fyrir sig, best að setja bökunarpappír yfir og undir deigið og rúlla því út og setja síðan pappírinn með útrúlluðu deiginu beint á bökunarplötuna. Notið borðhníf og skerið deigið í passlega stóra bita fyrir hrökkbrauð eða kex. Penslið með vatni eða olíu (sumir kjósa að pensla með eggi) og stráið sesamfræjum yfir. Bakast við 200°C í um 15-20 mín eða þar til gyllt*Uppskriftin passar á tvær bökunarplötur*Prófið að nota smá parmesan og rósmarin eða kúmen og anís eða birkifræ til að fá tilbreytingu í kexið.
MolarVissir þú að:Hægt er að fá lífrænar hnetur + möndlur + þurrkaða ávexti frá Himneskt með hjartanu á sambærilegu verði og það ólífræna? Fæst í Hagkaup + Bónus + 10-11.Hægt er að búa til ótrúlega gott ávaxtamauk sem er frábært í eplakökur og ýmsan bakstur í staðin fyrir sykur: 100g döðlur + 100g aprikósur + 100g rúsínur + 100g gráfíkjur + 1-2 msk vanilludropar + 1/8 tsk Himalaya salt + ½ ltr eplasafi = soðið saman í potti í 30-45 mín við vægan hita, kælt og maukað í matvinnsluvél eða hrært saman í hrærivél.Hnetur og fræ eru frábær próteingjafi og innihalda protein sem nýtast kroppnum vel.