Pítsur sem mjög hollur heilsubiti Uppskriftir af “heimsins bestu pítsum”. Pítsan á rætur sínar að rekja til miðjarðarhafslandanna þar sem bakað var brauð eða flatur brauðbotn í opnum ofnum og á það settir tómatar. Eins og svo margt sem verður vinsælt byrjar þetta á að vera fátækra manna matur. Við tengjum pítsur gjarnan við Ítalíu og það var líka í Napolí árið 1830 sem fyrsti pítsu staðurinn er sagður hafa opnað. Antica Pizzeria Port’Alba er nafnið og eftir mínum heimildum þá er hann enn í fullu fjöri. Það hafa skapast deilur um hvað sé hin eina sanna pítsa og vildu sumir snillingarnir meina að Pizza Marinara og Pizza Margherita væru hinar einu sönna pizzur. Marinara sem er elsta pítsu útgáfan er með tómötum, oregano, hvítlauk, kaldpressaðri ólífuolíu og basil. Margheritan er í ítölsku fánalitunum, með tómatsósu, mosarella osti og basil. Hún heitir í höfuðið á ítölsku drottningunni Margheritu frá Savoy sem sat við hlið sins ektamaka og konungs Umberto 1 á árunum 1878 – 1900. Vinsæll skyndibiti – Hollur heilsubitiÞessi flati brauðbotn sem við í dag köllum flatböku eða pítsu er líklega einn af vinsælli skyndibitum heimsins. Það sem mér finnst svo frábært er að það er mjög einfalt að gera þetta að virkilega hollum og góðum heilsubita…. Þetta er vinsæll réttur og er hann til mjög víða og meira að segja eru til útgáfur af honum á flestum hráfæðistöðum víða um heiminn Í dag er ekkert heilagt þegar pítsa er annars vegar og eru til alveg ótrúlega margar uppskriftir af botnum, pítsusóum og áleggi. Ég ætla að gefa ykkur uppskrift af pítsubotninum sem ég bý til úr lífrænu spelti, fræjum og hnetum og vínsteinslyftidufti. Þessi botn er sérstaklega einfaldur og fljótlegur. Hann þarf ekkert að standa og hefa sig, heldur verður betri því fyrr sem hann fer í ofninn. Ég blanda gjarnan saman fínu og grófu spelti og nota öll þau fræ sem ég á til í skápunum. Í uppáhaldi hjá mér eru hörfræ, sesamfræ, sólblómafræ og graskerjafræ ásamt hampfræjum. Einnig mala ég oftast einhverjar hnetur, helst heslihnetur eða möndlur. Síðan nota ég vínsteinslyftiduft sem lyftiefni í stað gers og örlítið salt. Ég set þurrefnin í hræivélaskál og blanda þeim saman. Mér finnst þessi botn verða lang bestur ef ég nota kaldpressaða kókosolíu og set ég hana út í þurrefnablönduna. Ég nota sjóðandi vatn sem vökva og helli því rólega út í deigið á meðan það er að hrærast. Þegar þetta verður að kúlu þá er deigið tilbúið. Þá flet ég deigið út og forbaka ofninn við 1550c í um 10-15 mín. Þetta er ótrúlega auðveld og fljótleg uppskrift sem gerir það mjög freistandi að skella í botn á ýmsum tímum sólarhringsins. Ég læt unglinginn minn stundum ná mér kl 7 að morgni þegar hún setur upp hundsaugun og biður mig ótrúlega fallega um eitthvað annað en salat í nesti. Plííís. Þá líður innan við 15 mín frá því að ég byrja á pítsunni þar til hún er komin í nestisboxið…. Ég hvet ykkur til að vera voguð og skapandi í eldhúsinu, ég skal gefa ykkur nokkrar hugmyndir sem vonandi hjálpa ykkur til að búa til ykkar eigin útgáfur af sérlega girnilegum og hollum pítsum. Gangi ykkur sem allra best Solla -------------------------------------------------------------------------------- Fljótlegir pítsubotnar úr spelti og fræjum 250 g spelt, t.d. fínt og gróft til helminga 50g sesamfræ 50g sólblómafræ 50g graskerjafræ 50g hörfræ 50g malaðar hnetur 1-1 ½ msk vínsteinslyftiduft smá himalaya eða sjávarsalt 2-3 msk kaldpressuð olía, t.d. kókos 180 – 200ml dl heitt vatn Blandið þurrefnunum saman í skál, ég set þetta gjarnan í matvinnsluvél með hnoðara. Bætið olíunni útí og endið á að setja vatnið rólega útí á meðan vélin er í gangi. Þegar deigið myndar kúlu í vélinni er það tilbúið. Stráið smá spelti á borð og fletjið deigið frekar út. Ég nota hringlóttan disk sem er um 23 cm í þvermál og skelli honum oná deigið til að skera út eftir og fá hringlaga botn. Setjið bökunarpappír á ofnplötu, leggið botninn þar oná og forbakið við 200°c í 3-4 mín. Látið rakt stykki oná botnana svo þeir haldist mjúkir. Þessi uppskrift gefur af sér 3-4 botna – fer eftir hvað þið hafið þá þykka. Græn pítsa 2 forbakaðir pítsubotnar Grænt pestó: 1 búnt basil 100g lífrænar furuhnetur, þurrristaðar í ofni þar til gylltar 2 hvítlauksrif 1 lífræn daðla 1 tsk lauksalt 1 tsk næringarger smá himalaya eða sjávarsalt 1 dl lífræn og kaldpressuð ólífuolía Allt sett í matvinnsluvél og maukað. Grænmeti: 1 lítið brokkolíhöfuð, skorið í passlega munnbita 50 g sykurertur eða Edame baunir ½ dl lífræn og kaldpressuð ólífuolía safinn úr ½ lime ½ tsk pítsukrydd 1 avókadó, afhýtt og skorið í bita 2 vorlaukar, skornir í þunnar sneiðar 1 poki klettasalat Setjð brokkolí og sykurertur í skál, hellið ólífuolíu + sítrónusafa + pítsakryddi yfir og látið marinerast í 10 – 15 mín Smyrjið pestoinu á pítsabotnana, setjið brokkolí + sykurertur yfir, dreyfið klettasalatinu yfir og endið á að skutla avókdó bitum og vorlauk á pítsuna. Gott er skvetta smá ólífuolíu yfir í lokin. Í þessari pítsu er bara botninn bakaður, restin er af uppskriftinni er hrá. Enda er þessi númer 1 á vinsældarlistanum hjá flestum sem hana smakka….. Það er fallegt fyrir augað og gott fyrir bragðlaukana að strá nokkrum jarðaberjum yfir þessa í lokin. Rauð pítsa 2 forbakaðir pístubotnar Rautt pesto Rautt pesto 2 tómatar, skornir í bita ½ rauð paprika 1 dl lífrænir sólþurrkaðir tómatar, lagðir í bleyti í nokkra klst ½ dl gojiber, lögð í bleyti í 1 klst 2 döðlur 2 msk rauðlaukur, smátt saxaður 1 msk kaldpressuð ólífuolía 1 msk sítrónusafi smá cayenne pipar og himalaya/sjávarsalt Setjið allt í blandara og blandið vel. Geymist í um viku í loftþéttu íláti í ísskápnum. Grænmetið 2-4 gulrætur, skornar í þunna strimla (hægt að rífa þær niður eða taka þær á mandolíni) 4 tómatar, velþroskaðir – skornir í báta 100g jarðaber, skorin í báta 4 msk granateplakjarnar 50g furuhnetur Smyrjið pestoinu á pítsabotnana, veltið gulrótunum upp úr nokkrum matskeiðum af pestói, og setjið á botninn. Dreifið tómötunum yfir ásamt jarðaberjum og granateplakjörnum. Endið á að strá furuhnetunum yfir pítsuna og hlakkið til að njóta. Í þessari pítsu er bara botninn bakaður, restin er af uppskriftinni er hrá. Það er góð tilbreyting að setja nokkra bita af geitaosti eða fetaosti eða parmesan yfir þessa pítsu. Molar Vissir þú …… Hægt er að skipta út hvítu hveiti í öllum uppskriftum fyrir fínt malað spelt? Það getur verið að þú þurfir ekki alveg sama magn af vökva þegar þú bakar úr speltinu, settu vökvann smá saman útí svo þú fáir rétta áferð á deigið. Að það er ótrúlega sniðugt að baka nokkra pítsabotna í einu. Það munar frekar litlu tímalega séð á að baka 2 botna eða 4 þegar maður á annað borð er byrjaður að baka. Og síðan frysta þá sem maður er ekki að nota. Það er mjög þægilegt að eiga frysta pítsubotna þegar kemur að erilsömu kvöldi….. Það er ótrúlega einfalt að búa til góðar berjabökur. Þið bakið fyrst góðan botn, tilvalið að nota pítsabotninn hér að ofan og bæta útí hann 1-2 msk af agavesýrópi, setjið síðan sultu og ber til helminga sem fyllingu í botninn og bakið í 10 mín eða berið fram hrátt. Mörgum finnst freystandi að bera fram þeyttan rjóma með þessu……..