Fróðleikur og spjall
11.11.2010 22:57:00

Solla og Dorrit Uppskriftir


Grænn djús

1 agúrka

1 hnefi grænkál eða spínat

1 límóna, afhýdd

2-3 cm bútur ferskur engifer

2 sellerístönglar

½ - 1 grænt epli

1-2 dl vatn

Skerið allt smátt niður og setjið í blandara ásamt vatninu. Blandið í svona 1 mín, sigtið – t.d. með spírupoka (sem fæst í Ljósinu Langholtsvegi 43) en einnig er hægt að nota nælonsokk. Frábært á fastandi maga fyrst á morgnana og síðan bara allan daginn:*

 

 

Gott og girnilegt glútenlaust kex:*

2 dl hörfræ, lögð í bleyti í 4 dl af vatni í 2-4 klst

2 dl hrat af grænmetis eða ávaxtasafa

1 dl sesamfræ

1 dl graskerjafræ

1 dl sólblómafræ

1 msk salt

2 msk af kryddi af eigin vali (t.d karrý, timian, hvítlaukur, wasabi, chilli)

Allt sett í hrærivél og hrært saman. Með því að nota litla ískúluskeið mótið þið kúlur sem flattar eru út og setjið á smjörpappír. Bakið við 180°C í 12 mín, snúið kexinu við og haldið áfram að baka í 12 mín eða þar til þetta er orðið gyllt og fallegt.


meira Til baka