Fróðleikur og spjall
21.2.2011 17:12:00

Uppskriftirnar úr Gott að borða 1.þáttur


Rauðrófusalat

1 kg rauðrófur, bakaðar í ofni við 175°C í 75 mín.

100g sólblómafræ, þurrristuð í ofni

ca 10 jarðaber, skorin í fernt

75g spínat

50g blandaðar kryddjurtir, ferskur kóríander + fersk minta + ferskur basil + ferskur kerfill

Afhýðið rauðrófurnar þegar búið er að baka þær og kæla þær, skerið síðan í bita og setjið í skál ásamt restinni af uppskriftinniþ Blandið öllu saman og hellið dressingu yfir


Dressing

4 msk eplaedik

4 msk kaldpressuð olía, t.d. ólífuolía eða önnur góð olía

2 msk grófkorna sinnep

2 msk balsamedik

2 msk dökkt agavesýróp

2 hvítlauksrif

smá salt og nýmalaður svartur pipar

Allt sett í blandara og blandað saman. Bætið smá vatni til að þynna ef þetta verður of þykkt.

 


Rauðrófu-ravioli

2 rauðrófur, skornar í örþunnar hringlóttar sneiðar, annað hvort með ótrúlega beittum hníf eða á “mandólíni”, líka hægt að nota ostaskerara?Marinering:?2 msk kaldpressuð ólífuolía

2 hvítlauksrif, pressuð?smá salt og nýmalaður svartur pipar

5 cm biti fersk engiferrót, rifin á grófu rifjárni og safinn kreistur úr henni

Skerið rauðrófurnar örþunnt og setjið á fat. Hrærið marineringuna saman og hellið yfir og látið standa í a.m.k 10 mín. ?Fylling:

4 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í a.m.k. 2 klst

2 dl vatn

1 dl sítrónusafi?1-2 hvítlauksrif

2 msk næringarger

1 msk laukduft

2 msk smátt söxuð steinselja

2 msk smátt saxaður kóríander

2 msk smátt saxaður basil

 

Bragðist til með smá himalaya/sjávarsalti og nýmöluðum ferskum pipar.?Setjið alla uppskriftina í matvinnsluvél og maukið og blandið vel saman. Síðan setjum við 1 væna teskeið af fyllingu á rauðrófusneið og síðan aðra sneið eins og lok oná. Fallegt að skreyta með smá fersku grænu kryddi.  

 

 

Kúrbítspasta

3 meðalstórir kúrbítar, afhýddir?2 msk sítrónusafi?2 hvítlauksrif?Smá sjávarsalt

Notið mandolin eða “juliennepeeler” og breytið kúrbítnum í pasta.  Það er líka hægt að rífa það á grófasta rifjárninu í matvinnsluvélinni. Sumar matvinnsluvélar hafa járn til að búa til chips og þá er það notað. Setjið í skál og blandið sítrónusafa samanvið ásamt hvítlauknum og smá sjávarsalti og berið fram með tómatsósu og ómissandi kasjú”osta”sósu.

 

Tómatsósa

2 stórir tómatar, skornir í bita?1 rauð paprika, steinhreinsuð og skorin í bita?75g g sólþurrkaðir tómatar, lagðir í bleyti í 6-8 klst? 2-3 döðlur?¼ b lífræn kaldpressuð ólífuolía eða önnur góð olía?2 hvítlauksrif, pressuð?¾  tsk sjávar salt, eða eftir smekk?smá cayenne pipar?2 msk smátt saxaður ferskur basil

2 tsk þurrkað

1 cm biti ferskur engifer?Setjið allt innihald tómatsósunnar, nema ferska kryddið í matvinnsluvél og blandið vel saman – en látið hana samt vera “smá chunky”. Bætið ferska kryddinu útí og blandið saman.  Setjið tómatsósuna í skál og berið fram.?

 

Kasjú”osta”sósa

1 dl kasjúhnetur lagðar í bleyti í 4 klst

1 dl vatn

1 hvítlauksrif

1 msk næringarger

1-2 döðlur

2-3 msk sítrónusafi

1 tsk laukduft

2/3 tsk himalaya salt?Allt sett í blandara og blandað þar til kekklaust.


meira Til baka