Hráfæðinámskeið I - byrjendur
Frábært námskeið fyrir byrjendur í hráfæði. Á þessu námskeiði kenni ég ykkur matreiðsluaðferðina á bak við hráfæðið og að taka hráfæðið meira inn í matseðilinn ykkar, útbúa einfalda, fljótlega, holla og bragðgóða hráfæðirétti, ásamt girnilegum eftirréttum. Athugið að allir þessir réttir passa vel með kjöti, fiski og venjulegum grænmetismat - en standa líka einir og sér sem hin fullkomna hráfæðismáltíð. Margir eru sammála um að hráfæði sé mataræðið sem haldi þér í kjörþyngd áreynslulausast. Formið á námskeiðinu er sýnikennsla og fræðsla. Það fylgir frábær uppskriftamappa og viku matseðil.
- Lærðu að elda ódýrt og hollt
- Hvað er hráfæði?
- Að auka hráfæðið í matnum
- Hráefni, næring, matarplan
- Hvernig á að spíra
- Gómsætar uppskriftir
Við búum til: möndlu/hnetumjólk, græna sjeika/djúsa, salat, álegg, aðalrétt, himneskan eftirrétt
Á þessu námskeiði notumst við eingöngu við algeng eldhús áhöld s.s. matvinnsluvél og blandara við matseldina en verðum kynnt fyrir öðrum töfratækjum
Uppskriftamappa fylgir ásamt fullri máltíð.
Verð kr. 4500.-
Tími: 17:50 -20:00 Námskeiðið er ein kvöldstund - veittur er 10% afsláttur af öllu í búðinni ef verslað er eftir námskeið.
Panta námskeið >>
www.himnesk.is
solla@this.is