SÚPERFOOD/OFURFÆÐIS námskeið:

Á þessu námskeiði kennum við ykkur að nýta SÚPERFOODS/OFURFÆÐI í matargerðinni. Þarna verða kynntar alveg glænýjar uppskriftir sem eru m.a. afrakstur tilrauna okkar David Wolfs í hráeldhúsinu mínu……:* Við útbúum einfalda fljótlega, holla og bragðgóða hráfæðirétti þar sem SÚPERFOODS/OFURFÆÐI er fléttað skemmtilega inn í uppskriftirnar. Þið lærið líka að búa til girnilega eftirrétti sem má háma í sig áhyggjulaust!!! Athugið að allir þessir réttir passa vel með kjöti, fiski og venjulegum grænmetismat - en standa líka einir og sér sem hin fullkomna hráfæðismáltíð.

Formið á námskeiðinu er sýnikennsla og fræðsla.

Það fylgir:

  • Uppskriftamappa
  • hráfæðibók á Íslensku 
  • 4 vikna matseðill + uppskriftir á ensku.

 Verð kr. 4500,-
Tími: 17:50-20:00

Námskeiðið er ein kvöldstund. - Veittur er 10% afsláttur í búðinni á öllum vörum sem verslað er eftir námskeið. Ath. takmarkaður fjöldi námskeiðsgesta.


Panta námskeið >>