1 dl heslihnetur
2 1/2 dl vatn
Sett í blandara og blandað í svona 1 -2 mín, síðan er þetta sigtað -
annað hvort í gegnum spírupoka (fæst í Ljósinu Langholtsvegi 43) eða í
gegnum nælonsokk eða í gegnum þétt riðið sigti. Hratið er frábært í
alls konar bakstur, s.s. brauð eða súkkulaðiköur. (ég frysti mitt ef ég
nota það ekki strax)
Setjið möndlu/heslihnetumjólkina í blandarann aftur og bætið útí:
1 msk agavesýróp eða 2 döðlum
2 msk kakódufti
1 msk kaldpressaðri kókosolíu
smá vanillu - dropar eða duft
nokkrir klakar
Balandið þar til allt er vel blandað saman - hlakkið til að njóta:)*
Það er hægt að gera þessa uppskrift án þess að sigta mjólkina, þá verður hún kornóttari:)*