Brauð

Bláberjamuffins m/kasjúkremi
Brauð
Uppskrift:

1 ½ dl möndlumjólk eða sojamjólk eða hrísgrjónamjólk eða mjólk eða vatn
2 tsk sítrónusafi
1 ½ dl agavesýróp
¾ dl kaldpressuð kókosolía eða önnur kaldpressuð olía
1 tsk vanilluduft
2 ½ dl spelt t.d. fínt og gróft til helminga
1 ½ tsk vínsteinslyftiduft
¼ tsk himalaya eða sjávarsalt

Hitið ofninn í 180*C. Setjið möndlumjólk (eða annan vökva) í matvinnsluvél ásamt sítrónusafa, agavesýrópi, kókosolíu og vanilludufti og hrærið í smá stund. Blandið þurrefnunum sama í skál og bætið síðan útí þessa blöndu. Endið á að hræra bláberjunum létt útí. Setjið í ykkar uppáhalds muffins form eða bréf og bakið í um 18-20 mín eða þar til þetta er alveg gegnum bakað. Ef þið ætlið að hafa krem á þeim þá er best að láta þær kólan fyrst.

Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Mjólkurlaust

Vörur í uppskrift:
Bókhveitipönnukökur
Brauð
Uppskrift:

100 g bókhveiti
1/2  tsk. vínsteinslyftiduft, úr heilsuhillunni
smá sjávarsalt
1 egg, má sleppa og bæta í staðin við 1 tsk. af lyftidufti
1 msk. ólífuolía
3 dl sojamjólk, hrísgrjónamjólk eða kúamjólk
smá olía til að steikja upp úr


Blandið þurrefnunum saman í skál. Hrærið saman eggi, ólífuolíu og vökva í annarri skál, hellið síðan útí þurrefnaskálina og hrærið stöðugt í. Steikið á pönnu eins og venjulegar pönnukökur.

Úr deiginu fást 8-10 pönnukökur.

Eiginleikar:
Eiginleikar Glútenlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift:
Einfalt rúgbrauð
Brauð
Uppskrift:

2 dl rúgmjöl
2 1/2 dl spelt
1 msk. vínsteinslyftiduft,
1/2 tsk. salt
1 dl fínt saxaðar fíkjur eða aðrir þurrkaðir ávextir,
2 1/2 dl ab-mjólk, sojajógúrt eða annar vökvi, t.d. ab-mjólk og vatn til helminga
smá sesamfræ eða rúgmjöl til að strá inn í formið


Hitið ofninn í 180°C. Blandið þurrefnunum saman í skál, bætið fíkjunum útí og loks vökvanum. Smyrjið brauðform með smá olíu og stráið sesamfræjum eða rúgmjöli innan í það svo að brauðið festist síður við. Bakið brauðið við 180°C í 35-40 mín. Þegar þið takið brauðið úr forminu er gott að vefja blautu stykki utanum svo að það mýkist.

Fróðleikur:
Úr þessari uppskrift fáið þið eitt lítið brauð en eitt stórt ef þið tvöfaldið hana. Hrærið sem minnst í deiginu svo að það verði létt í sér.

Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift:
Glútenlaust Sollu brauð
Brauð
Uppskrift:

150 g kartöflumjöl
150 g hrísgrjónamjöl
50 g bókhveiti
100 g maísmjöl
45 g sojamjöl
4 tsk vínsteinslyftiduft
¾ tsk himalayasalt eða sjávarsalt
1 tsk agavesýróp
1 msk kókos eða ólífuolía
125 ml hrísgjróna- eða soja- eða ab-mjólk eða heitt vatn
125 ml heitt vatn
2 msk sítrónusafi

- Setjið þurrefnin í hrærivélaskál ásamt kókosolíunni og hrærið vel saman (ég set hnoðara í matvinnsluvélina).
- Bætið restinni af uppskrifinni útí og látið hnoðast saman. 
- Setjið brauðið í smurt brauðform eða mótið hleif og setjið á bökunarpappír í eldhússkúffu.
- Bakið við 180C í 45-50 mín eða þar til fullbakað.
- Stingið prjóni í brauðið og þegar ekkert deig festist við hann lengur þá er þetta tilbúið.
- Vefjið utan um brauðið viskustykki og leyfið að kólna algjörlega áður en þið skerið það.
- Frábært að skera í þunnar sneiðar og setja í brauðristina.
- Oftast nota ég ískúluskeið og set í teflon muffinsform – akkúrat 12 bollur sem ég baka í um 30 – 35 min við 180C – frábærar nýbakaðar.

Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Glútenlaust
Eiginleikar Mjólkurlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift:
Glútenlaust Sollu brauð ótrúlega einfalt & gott
Brauð
Uppskrift:
 

150 g kartöflumjöl
150 g hrísgrjónamjöl
50 g bókhveiti
100 g maísmjöl
45 g sojamjöl
4 tsk vínsteinslyftiduft
¾ tsk himalayasalt eða sjávarsalt
1 tsk agavesýróp
1 msk kókos eða ólífuolía
125 ml kókosvatn
125 ml heitt vatn
2 msk sítrónusafi

  • setjið þurrefnin í hrærivélaskál ásamt kókosolíunni & hrærið vel saman (ég set hnoðara í matvinnsluvélina)
  • bætið restinni af uppskrifinni útí & látið hnoðast saman  
  • setjið brauðið í smurt brauðform eða mótið hleif & setjið á bökunarpappír í eldhússkúffu
  • bakið við 180C í 45-50 mín eða þar til fullbakað
  • stingið prjóni í brauðið & þegar ekkert deig festist við hann lengur þá er þetta tilbúið
  • vefjið utan um brauðið viskustykki & leyfið að kólna algjörlega áður en þið skerið það
  • frábært að skera í þunnar sneiðar & setja í brauðristina

Muffins

  • oftast nota ég ískúluskeið & set í teflon muffinsform – akkúrat 12 bollur sem ég baka í um 30 – 35 min við 180C – frábærar nýbakaðar
Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Glútenlaust
Eiginleikar Mjólkurlaust

Vörur í uppskrift:
Grillað brauð
Brauð
Uppskrift:
300 g spelt* fínt eða gróft eða bæði blandað saman
50 g rifinn parmesan eða jurtaparmesan (má sleppa)
1 msk smátt saxað ferskt grænt krydd, t.d. kóríander, basil, graslaukur, steinselja, oreganó, timian, mynta, kerfill eða.......
1 tsk sjávarsalt
1/2 dl lífræn ólífuolía*
150 - 175 ml heitt vatn

setjið þurrefnin + ferskt krydd ásamt olíunni í hrærivélina & látið blandast vel saman - bætið vatninu rólega útí

deiginu er svo skipt í 10 hluta & hverjum hluta rúllað út - gott að strá smá spelti á borðið setjið brauðið á grillið ca 30 - 40 sek á hvorri hlið - tilbúnu brauðin eru sett inn í rakt stykki svo þau harðni ekki

....þessi eru frábær með öllum mat
Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift:
Gróft og gott Gló brauð
Brauð
Uppskrift:
2 ½ dl gróft spelt
2 ½ dl fínt spelt
1 dl sesamfræ
1 dl sólblómafræ
1 dl kókosmjöl
1 dl saxaðar hnetur
1 msk vínsteinslyftiduft
½ tsk salt
2 -3 msk hunang
2-2 ½ dl sjóðandi vatn
1 msk sítrónusafi

Hitið ofninn í 180°C, blandið þurrefnunum saman í skál + hunang, hellið vatni og sítrónusafa útí og hrærið þessu saman, skiptið í tvennt, setjið í 2 meðalstór smurð form eða 1 í stærra lagi. Bakið við 180°C í um 30 mín , takið brauðið úr forminu og haldið áfram að baka í 10 mín.
Hrökkkex
Gulrótarbollur
Brauð
Uppskrift:
Þessar bollur eru sérstaklega fljótlegar og þægilegar og hér gildir að hræra sem minnst í deiginu. Notið ískúluskeið til að móta bollurnar sem verða 8-10, eftir því hvað ískúluskeiðin er stór.

3 dl spelt, t.d. fint og gróft til helminga
1 1/2 dl rúgmjöl
1-2 dl rifnar gulrætur
1 1/2 msk vínsteinslyftiduft
1/2-1 tsk. salt
2-2 1/2 dl sjóðandi heitt vatn
2 msk sítrónusafi
1 msk agave sýróp (má sleppa)

Blandið öllu saman í skál nema vatninu og sítrónusafanum og sýrópi (ef þið kjósið að nota það) og hrærið síðan vatninu útí. Bestur árangur næst með því að hræra deigið í höndunum og nota bara um 10 - 15 hreyfingar til að koma deiginu saman. Setjið smjörpappír á bökunarplötu, eða innan í vítt form, og búið til bollur úr deiginu með ískúluskeið. Setjið þær hlið við hlið á bökunarplötuna eða í formið. Þetta verða 8-10 bollur, það fer eftir stærðinni á ískúluskeiðinni. Bakið bollurnar í ofni við 200°C í 25-30 mín. Þegar bollurnar eru bakaðar eru þær settar í körfu eða skál og rakt viskustykki breitt yfir svo að þær mýkist.

Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Mjólkurlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift:
Gulur og gómsætur polenta hleifur
Brauð
Uppskrift:

175 g spelt, 
275 g maísmjöl, öðru nafni „polentamjöl“
2 tsk. vínsteinslyftiduft, úr heilsuhillunni
1 tsk. sjávarsalt
1 msk. ferskt grænt krydd, það sem ykkur finnst gott, ég vel timjan
4-6 döðlur, mjög smátt saxaðar 
1 dl ólífuolía
4 egg

250 ml sojamjólk, kúamjólk, kókosmjólk eða ab-mjólk

Hitið ofninn í 200°C og smyrjið ferkantað form, um 20x20 cm á kant. Setjið þurrefnin í skál og blandið vel saman. Þeytið eggin og bætið þeim útí skálina ásamt ólífuolíu, mjólk, döðlum og kryddi. Hrærið vel saman. Áður en deigið er sett í formið er gott að hita formið með því að setja það inn í ofninn í um 5 mín. Bakið hleifinn við 200°C í 25-30 mín., látið hann standa í 5 mín. áður en hann er tekinn úr forminu og settur á grind. Þetta brauð er langbest nýbakað!

Fróðleikur:

Hér hafið þið sætt og gott brauð úr maísmjöli. Brauðið er langbest nýbakað.

Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Glútenlaust
Eiginleikar Mjólkurlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift:
Hrökkkex
Brauð
Uppskrift:
1 dl haframjöl
1 dl sesamfræ
1 dl hörfræ
1 dl sólblómafræ
1 dl graskerjafræ
1 dl gróft spelt
1 dl fínt spelt
2 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk Himalaya/sjávar salt
1 1/4 dl kaldpressuð kókosolía eða ólífuolía
2 dl vatn

smá sesamfræ til að strá yfir deigið þegar búið er að fletja það út
Sólblóma og graskerjafræ eru þurrristuð á pönnu þar til gyllt og kæld, blandið síðan allri uppskriftinni saman og hnoðið deigið. Skiptið deiginu í tvennt og fletjið hvern hluta út fyrir sig, best að setja bökunarpappír yfir og undir deigið og rúlla því út og setja síðan pappírinn með útrúlluðu deiginu beint á bökunarplötuna. Notið borðhníf og skerið deigið í passlega stóra bita fyrir hrökkbrauð eða kex. Penslið með vatni eða olíu (sumir kjósa að pensla með eggi) og stráið sesamfræjum yfir. Bakast við 200°C í um 15-20 mín eða þar til gyllt
*Uppskriftin passar á tvær bökunarplötur
*Prófið að nota smá parmesan og rósmarin eða kúmen og anís eða birkifræ til að fá tilbreytingu í kexið.
Múffur, glútenlausar
Brauð
Uppskrift:

2 1/2 dl hrísgrjónamjöl
1 dl kartöflumjöl
1 dl maísmjöl
1/2 tsk. salt
1 tsk. vínsteinslyftiduft, úr heilsuhillunni
1 tsk. vanilluduft eða vanilludropar
 1 3/4-2 dl ab-mjólk, sojamjólk eða hrísgrjónamjólk
100 g appelsínumarmelaði, sykurlaust
1 egg
4 msk. ólífuolía

Hitið ofninn í 200°C. Blandið þurrefnunum saman í skál. Setjið ab-mjólk, marmelaði, egg og ólífuolíu í matvinnsluvél og blandið vel saman. Hellið síðan þessari blöndu út í þurrefnaskálina og hrærið varlega saman, það er mikilvægt að hræra ekki of mikið. Smyrjið múffuformin, setjið deigið í og bakið við 200°C í 20-25 mín.
Takið út úr ofninum og kælið á grind. Það er gott að láta múffurnar bíða í 30 mín. áður en farið er að gæða sér á þeim.

Úr deiginu fást um 10 múffur.

Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Glútenlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift:
Ostamúffur
Brauð
Uppskrift:

125 g spelt 
75 g maísmjöl
3 tsk. vínsteinslyftiduft, úr heilsuhillunni
1/2 tsk. salt
150 g nýrifinn parmesanostur eða sojaparmesanostur
2 egg
50 ml ólífuolía
250 ml ab-mjólk eða sojajógúrt

Hitið ofninn í 200°C og blandið þurrefnunum og osti saman í skál. Þeytið eggin vel saman í annarri skál, þar til þau verða létt og freyðandi. Bætið olíu og ab-mjólk útí þurrefnaskálina og blandið varlega saman, bætið síðan eggjunum útí og blandið varlega saman við. Smyrjið múffuform með smá olíu og setjið deigið í með ískúluskeið. Bakið múffurnar við 200°C í um 20 mín.

Fróðleikur:
Úr deiginu fást um 10 múffur og þið getið notað venjulegan ost í staðin fyrir sojaost. Leyndarmálið á bak við velheppnaðar múffur er að þeyta eggin vel saman í hrærivél og velta öðru varlega útí í lokin.

Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift:
Pecanhnetubollur
Brauð
Uppskrift:
Pecanhnetubollur

4 dl spelt,
1 dl malaðar pecanhnetur eða valhnetur
1/2 dl sojamjöl, má sleppa eða nota kókosmjöl í staðin
3 tsk. vínsteinslyftiduft
1/2-1 tsk. salt
2-2 1/2 dl ab-mjólk eða sojajógúrt


Blandið þurrefnunum saman í skál og hrærið síðan ab-mjólkinni útí. Bestur árangur næst með því að hræra deigið í höndunum og nota bara um 10 hreyfingar til að koma deiginu saman. Setjið smjörpappír á bökunarplötu, eða innan í vítt form, og búið til bollur úr deiginu með ískúluskeið. Setjið þær hlið við hlið á bökunarplötuna eða í formið. Þetta verða 8-10 bollur, það fer eftir stærðinni á ískúluskeiðinni. Bakið bollurnar í ofni við 200°C í 25-30 mín.

Fróðleikur:
Þessar bollur eru sérstaklega fljótlegar og þægilegar og hér gildir það sama og í uppskriftunum að framan, að hræra sem minnst í deiginu. Notið ískúluskeið til að móta bollurnar sem verða 8-10, eftir því hvað ískúluskeiðin er stór.

Þegar bollurnar eru bakaðar eru þær settar í körfu eða skál og rakt viskustykki breitt yfir svo að þær mýkist.

Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift:
Pönnubrauð
Brauð
Uppskrift:

3 dl spelt
smá salt
1/2-1 dl heitt vatn
1-2 msk. olía
smá spelt til að rúlla út á
smá krydd, ef vill, t.d. svört sesamfræ eða laukfræ

Ef notað er spelt þá er gott að blanda saman til helminga fínu spelti og grófu spelti. Blandið spelti og salti saman í skál og nuddið olíunni inní speltið. Bætið vatninu útí, litlu í einu, og hnoðið þar til deigið er mjúkt viðkomu. Einnig er hægt að hræra deigið í hrærivél og er það mun auðveldara. Skiptið deiginu í 8 hluta og rúllið síðan hverjum hluta þunnt út, eða þar til hann er um 20 cm í þvermál. Hitið pönnu og steikið brauðin á henni þurri og heitri í um 1 mín. á hvorri hlið. Setjið rakt stykki og plastpoka utan um tilbúnu brauðin til þess að þau harðni ekki.

Brauðin má einnig baka í ofni og eru þau þá bökuð við 250°C í um 1 mín. á hvorri hlið.

Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Mjólkurlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift:
Sesamkex
Brauð
Uppskrift:

150 g spelt  
50 g sesamfræ 
1/2 tsk. salt
1 tsk. sinnepsduft
50 g rifinn sojaostur eða venjulegur ostur
2 msk. rifinn sojaparmesanostur eða venjulegur parmesanostur
60 ml ólífuolía
1 eggjarauða
safi úr 1/2 sítrónu 
smá sesamfræ til að strá yfir kexið

Setjið spelt, sesamfræ, salt, sinnepsduft og ost í matvinnsluvél og blandið saman. Bætið olíunni útí og blandið þar til deigið verður eins og fín brauðmylsna. Blandið eggjarauðu og sítrónusafa saman í skál og hellið síðan rólega útí deigið, hafið matvinnsluvélina í gangi á meðan. Hættið að blanda þegar deigið byrjar að hnoðast saman. Stráið smá spelti á borðið, setjið deigið þar á og hnoðið smávegis, eða þar til deigið er orðið að bolta. Fletjið deigið síðan út með kökukefli og hafið það um 1/2 cm á þykkt. Penslið með smá olíu eða eggjahvítu, stráið sesamfræjunum yfir og skerið síðan í um 1 x 2 cm stóra bita. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og kexið þar á. Bakið sesamkexið við 200°C í um 10 mín.

Fróðleikur:
Það er einnig hægt að búa til stangir og ýmislegt annað úr deiginu og þá rúllið þið því öðruvísi út eða skerið það á annan hátt. Þeir sem vilja geta notað annan ost en sojaost, t.d bragðsterkan venjulegan ost, góðan venjulegan parmesanost og kexin verða frábær.

Þetta sesamkex er í raun ostakex og það er mjög einfalt og fljótlegt að búa það til. Úr uppskriftinni fáið þið 30-40 kexkökur.

Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift:
Speltbollur
Brauð
Uppskrift:
Speltbollur
10 dl spelt*, má blanda saman fínu og grófu til helminga
1 dl sólblómafræ*
1 dl sesamfræ*
2 msk vínsteinslyftiduft*
1 tsk himalaya* eða sjávarsalt
7-8 dl sjóðandi vatn
3 msk sítrónusafi

Blandið þurrefnunum saman í skál, hellið 7 dl af sjóðandi vatni útí ásamt sítrónusafanum og blandið VARLEGA saman t.d. með sleif, bætið restinni af vatninu útí ef með þarf. Deigið á að líta út eins og þykkur hafragrautur. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu og notið ískúluskeið við að móta bollurnar, látið þær vera þétt upp við hvor aðra
Stráið fræjum yfir bollurnar og bakið við 200C í um 25-30 mín
Eiginleikar:
Eiginleikar Gerlaust
Eiginleikar Mjólkurlaust
Eiginleikar Sykurlaust

Vörur í uppskrift: