Himneskur hafragrautur
- Vegan: Já
- Hráfæði: Já
Uppskrift
Þetta er frábær morgungrautur sem þarf ekki að elda heldur bara leggja í bleyti yfir nótt.
- 2 dl tröllahafrar eða haframjöl
- 2 msk sesamfræ
- 2 msk graskersfræ
- 2 msk kókosmjöl
- 2 msk rúsínur
- 2 stk döðlur, smátt saxaðar
- 2 stk lífrænar aprikósur, smátt saxaðar
- Út á:
- 1 dl ávextir í sneiðum
- (t.d. epli, banani, mangó, bláber)
- 1 dl möndlumjólk
- 1 msk kakónibbur
Setjið allt í skál, hellið vatni út á, látið fljóta svona 2 cm yfir og látið standa yfir nótt. Hellið vatninu af og setjið allt í matvinnsluvél og blandið lauslega.
Setjið í skál ásamt ferskum ávaxtabitum, hellið möndlumjólk út á og stráið kakónibsum yfir. Þessi grautur geymist í 2 sólarhringa í ísskáp.